Ákvörðun tekin ! / Decision made !

Loksins búinn að taka ákvörðun eftir margra mánaða umhugsun, kvöl og pínu. Á mótorhjóli kringum hnöttinn !  Þessa ferð hef ég haft í kollinum á mér í marga mánuði og sé fram á að komast hana næsta vor. Þetta er stór ákvörðun og ég hef ákveðið hér með leyfa áhugasömum að fylgjast með mér, undirbúningi þessarar ferðar og vonandi allri ferðinni.    Fyrir liggur að næstu 3 - 4 mánuðir fari í undirbúning sem er ansi mikill en jafnframt nauðsynlegur.  Skýri það síðar.  Ferðin sjálf mun svo taka svipaðan tíma.

Er ekki tilbúinn með allt hér og nú á þessari bloggsíðu en kem til með að setja inn nánari upplýsingar og það sem til fellur síðar.

 Ég veit ekki til þess að nokkur annar Íslendingur hafi mótórhjólað kringum heiminn en ef svo er væri gaman að heyra um það.

I have finally decided after many months of consideration !  To ride alone on motorcycle around the world.  I have been thinking about this trip for many months and my plan is to go next spring.  This is a big decision and I have decided to write about my preparation and hopefully all the trip for interested people.  I will need 3-4 months to prepare this trip wich is long but necessary.  Will exlpain that later.  The trip will then take similar time. I am not ready with everything now on my blog but I will later put in more details and information. I do not know that any other icelandic person have done that, ride around the world but if so it would be nice to hear about it.

 


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband