Færsluflokkur: Ferðalög
27.4.2007 | 13:33
11 dagar til brottfarar / 11 days to go
Síðasti virki dagur vikunnar er runninn upp og byrjaði með skemmtilegu viðtali við okkur bræður hjá Hrafnhildi Halldórsdóttur og Guðrúnu Gunnarsdóttur á Rás2 í morgun. Hressar og skemmtilegar konur sem gaman var að ræða við. Sjá viðtalið hér að neðan. Svo lá leið uppí MotorMax þar sem við hittum Tóta og Kristján markaðsmanninn þeirra og vorum við að fara yfir málin varðandi væntanlegar uppákomur fyrir ferðina. Þann 5. mai sem er laugardagur verður líf og fjör hjá MótorMax þar sem við bræður verðum með hjólin og útbúnað, fræðsluefni og myndir og allir velkomnir. Eins langaði mig líka til að hvetja alla sem hafa áhuga að fylgja okkur til Seyðisfjarðar að slást í hópinn og hjóla með okkur. Planið er eins og áður er sagt að leggja stað kl. 10 þriðjudaginn 8.mai frá Motormax og hjóla norður til Akureyrar, stoppa þar í 2 tíma í verslun þeirra á Akureyri og halda svo áfram til Egilsstaða og heimsækja þá Yamaha menn þar líka. Það yrði voða gaman að fá sem flesta með. Í dag fara svo hjólin í merkingu hjá Frank og Jóa og verða vonandi klár á morgun því okkur langar að hjóla til Keflavíkur og kíkja á ameríska undrabarnið sem mun sýna listir sínar þar. Ég hef fengið mikil og sterk viðbrögð við viðtalinu í morgun og eins fréttinni sem er núna á vefvarpi mbl.is, sjá einnig hér fyrir neðan. Mörgum finnst við ansi kaldir og skrýtnir en margir skilja þessa ævintýraþrá og ferðamennsku. Læt svo fylgja með mynd af skemmtilegri heimsókn saumaklúbbs konunnar minnar í gærkvöldi en Jóhanna vinkona brá sér á bak og hafði orð á því hvað hjólið væri stórt. Gaman að fá svona heimsóknir og ég ítreka að allir eru velkomnir að líta inn til mín í skúrinn hvenær sem er ef þeir hafa áhuga.
Rás 2 viðtal: http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4331504/0
Vefvarp mbl.is: http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1266695
This last day of the week started with a very good interview on national radio, Rás2. Two very funny and nice women in control there. After the interview I went to the Yamaha dealer here in Iceland and we went through the upcoming events that is going to take place the 5th of mai. Me and my brother wil be in there store with the bikes and gear and talk to people, answer there questions and show them some pictures. Also I want to ask everyone that can to join us when we start the trip, to ride with us the first leg, Reykjavik - Akureyri - Egilstaðir. Later today the bikes are going to the graphic shop, where they will put some stickers and labels on the bikes. Tomorrow we like to ride to Keflavik and look at the motorcycle show which is held there. I have got many positive and strong comments this morning regarding the interview and the story on the web-edition of the biggest morning paper here in Iceland. Many people think we are a little bit crazy, but most of them understand the adventure factor of this. Last night I got a visit from my wifes women club, and it was fun. And last, remember, everyone is always velcome to visit me in the garage at any time.
Ferðalög | Breytt 28.4.2007 kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2007 | 19:50
12 dagar til brottfarar ! / 12 days to go !
Tíminn líður og margt á eftir að gerast. Eftir að hafa skutlast með prinsessuna mína í leikskólann í morgunn, þá skrapp ég í Húsasmiðjuna og keypti nokkrar skrúfur, skinnur, rær ofl. sem vantaði. Síðan fór í verslunina Dynjanda, þar sem þeirra frábæra starfsfólk tók á móti mér og var ég þar að skila headsetti í hjálm sem passaði ekki. Þeir hafa styrkt okkur með góðum afslætti og gáfu okkur þessa fínu póloboli. Takk fyrir það. Svo hringdi Habbý á Rás2 í mig og við fórum aðeins yfið það sem við ætlum að spjalla um í morgunþættinum hennar í fyrramálið. Muna að hlusta: Rás2 kl. 7:30 - Ég og Einar í viðtali um ferðina okkar. Nú svo komu menn frá mbl.is, og tóku viðtal við okkur og einnig myndir og video sem birt verður á mbl.is undir liðnum VEFVARP. Þetta verður birt á forsíðu mbl.is á morgunn milli kl. 10 og 11. Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, - einn kunningi minn spurði mig í gær: Hvernig stendur á því að í dag eru ca 10 dagar til brottfarar, en í gær voru 10 vikur til brottfarar ? Já, tíminn líður hratt þegar gaman er.
Time flyes and many things still to be done. After I drove my little princess to the kindergarden, I went to the hardware shop and bought a few things I needed, nuts and bolts etc. Then I went to another shop that sold me the headsett for the helmet, and returned an extra set that I had. They gave me a nice polo shirt for a goodbye present. Nice people. Then Habby from the national radio called me again, and we went over the interview that is taking place tomorow morning. Then two guys from our biggest webnewspaper visited us and filmed and interviewd us and it will be puplished on the web tomorow morning. www.mbl.is.
Ferðalög | Breytt 27.4.2007 kl. 08:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2007 | 21:13
Hjólin nánast tilbúin / The bikes almost ready
Hér getið þið séð mótorhjólin eins og þau eru núna. Við vorum að klára að skrúfa þau saman eftir að hafa sótt hluti úr sprautun. Nú eru þau farin að líta svolítið skemmtilega út. Það var Jonni og strákarnir á Bifreiðaverkstæði Jónasar sem sprautuðu hjólin og það sem meira er, þeir styrktu okkur með því að gefa okkur bæði efni og vinnu. Frábærir strákar þarna á ferð !
This is how the bikes looks now, almost ready. They look very nice.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2007 | 10:37
13 dagar til brottfarar ! / 13 days to go !
Smá harðsperrur í skrokknum segja mér að líklega hef ég tekið svolítið á í ræktinni á mánudaginn, en allavega var Arnar einkaþjálfari frekar erfiður við mig í morgun og var tekið vel á því. Rússinn sem við Einar fórum að hitta í gær, var enginn Rússi ! Það kom í ljós að smá misskilningur var á ferðinni og sá sem við hittum er Íslendingur sem starfar og býr í Rússlandi. Við spjölluðum lengi saman og gaf hann okkur nokkra góða punkta. Til dæmis ef að lögregla stoppar mann í umferðinni í Rússlandi, og jafnvel þó að ekkert sé að, þá skal borga hverrir löggu ( ef þeir eru fleiri en einn ) 100 rúblur (260 kr). Ef þú þarft að láta næturvörðinn gæta hjólanna yfir nótt, þá réttir maður honum 500 rúblur (1300 kr). Með öðrum orðum - mútur. Nokkrir fleiri punktar komu fram og þökkum við honum fyrir. Ég fer núna í hádeginu og sæki nýsprautaða tanka, bretti ofl þannig að við ættum að geta skrúfað saman í dag. Semsagt, hjólin ættu loks að klárast í dag. Þá tekur við næsti kafli, þ.e. að fara að reyna að pakka á hjólin ! Spurning hvort allt komist með, eða trúlega er betra að segja að það sé öruggt að það komist ekki allt með. Og þá er bara að fara að velja og hafna. Spennandi verkefni.
Little stiff in my body tells me that I have done something right in the gym on monday. Arnar, my coach, was hard on me this morning and I had a good workout. The russian guy that we where supposed to meet yesterday, was not a russian, he is an Icelandic guy that lives and works in Russia. We talked alot and he gave us many good advice. For example, when a police stopps you, pay them 100 rubles. Today about noon, I will pick up the tanks, mudgard etc. from the paintshop and later today, we will start the final assembling of the bikes. Can´t wait ! After that we have to start packing, or at least see what we can take along etc. This could take some time !
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2007 | 14:01
14 dagar að brottför / 14 days to go
Vaknaði sprækur í morgun og eftir að hafa skellt mér í sturtu fór ég með Fanndísi Maríu í leikskólann og síðan með tankana, afturbrettin og vindhlífina til hans Jonna á Bifreiðaverkstæði Jónasar til að sprauta þetta í réttum lit. Hann lofaði að klára þetta í dag og í fyrramálið, þannig hægt verði að sækja þetta í hádeginu á morgun. Þá loksins verður hægt að pússla hjólunum saman og fá endanlegt útlit. Síðan skrapp ég með stóra vinnubílinn hans Odds í Líf & List, og skilaði bílnum sem hann lánaði mér fyrir ferminguna hans Hauks. Ég er að vinna í því að setja töskurnar á hjólið mitt og leggja rafmagn fyrir aukaúrtaki svo hægt sé að hlaða myndavélar, síma ofl. Einnig er ég að tengja GPS tækið og leggja rafmagn að því. Hrafnhildur Halldórsdóttir í morgunútvarpinu á Rás2 hringdi svo í mig og vill fá okkur í viðtal á föstudagsmorgun kl. 7:30. Það er jú bara gaman og Habbý, eins og ég kalla hana, er alltaf hress og skemmtileg og ekki er Gestur Einar síðri. Endilega kveikja á viðtækjunum og leggja við hlustir. Einar bróðir fékk svo símtal í dag frá manni sem er rússneskur og er hér á landi og hann vill endilega hitta okkur og spjalla við okkur. Hann hafði frétt af þessari ferð og hefur eitthvað að segja okkur. Hef ekki hugmynd um hvað, - spennandi ! Í dag er þriðjudagur og nákvæmlega á þriðjudag eftir tvær vikur leggjum við af stað !!!!
Woke up this morning in a good mood, and after shower I took my little daughter to the kindergarden and then went to the paintshop with the fuel tanks, mudgards and the windbraker to let them paint it in right color. Jonni, my friend at the paintshop, promissed me to finish it today, or at least at noon tomorrow. After that I took the big truck that I borrowed from Oddur, my wifes systers husband, and returned it. Later that day, Habby, who is a very popular morning show on the radio called me and asked us to come to interview on Friday morning. Then we got another phonecall, and that was from a guy that told us that a Russian man wants to meet with us and tell us about Russia. This sounds interesting. Today is exactly two weeks until we start our trip.
Ferðalög | Breytt 25.4.2007 kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2007 | 13:25
15 dagar að brottför / 15 days to go
Þá er enn einn mánudagurinn runninn upp og ég skreið undan sænginni kl. 5.30 í morgun til að fara í ræktina til Arnars og hef ég oft verið sprækari ! Fínn veisludagur að baki og þá er yngsti pjakkurinn fermdur og 8 ár þangað til heimasætan verður fermd svo það er smá pása. En nú skal talið niður og í dag eru 15 dagar fram að brottför svo það fór nettur fiðringur um magann í morgun þegar ég hugsaði til þess að brátt legði ég í þessa ævintýraferð sem er sú lengsta sem ég gat fundið uppá . Fór í apótekið og náði mér í síðustu sprautuna mína og hjúkrunarfræðingurinn uppá heilsugæslu sprautaði henni svo í mig og var hún fyrir blóðmaura, sú síðari og nú er ég orðinn vel kýldur af mótefnum gegn allskonar sóttum og kvikindum og vonandi að þær dugi vel næstu 3 mánuði. Við Einar ætlum svo að skreppa á eftir niður í rússneska sendiráð að sækja vegarbréfsáritanirnar okkar og það er fínt að það sé komið á hreint en seinni árituna inn í Rússland og Hvíta Rússland fáum við á leiðinni. Tryggingarmálin komust líka á hreint í dag fyrir hjólin í Rússlandi, Mongoliu, Kanada og Bandaríkin og gott að það sé frá. Á morgun setjum við hjólin svo í sprautun og þá eru þau að verða svo til klár.
Ferðalög | Breytt 25.4.2007 kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2007 | 17:16
Google Earth !
Nú var ég að setja inn tengil sem hægt verður að smella á og þá opnast Google Earth og sýnir nákvæmlega leiðina sem við verðum búnir að fara ásamt þeim punktum þar sem við stoppum. Til þess að geta nýtt sér þetta verður að hafa Google Earth á tölvunni. Það er einfalt að hlaða því niður af vefnum. http://earth.google.com/ . Svo er bara að smella á hnappinn vinstra megin á síðunni minni undir "Tenglar" og "Hvar erum við núna" (Ath. þeir punktar sem eru þarna núna eru bara prufupunktar)
I put in a link that one can click on to see where we are on our trip. What happens is that Google Earth opens and shows the place we are on and the track. To use this you have to download Google Earth and that is simple. http://earth.google.com/. Then you can click on the link on the left side of my webpage where is says " Tenglar" and " Hvar erum við núna" (unfortunatey only in Icelandic)
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2007 | 09:20
Skyndihjálp ofl / First aid
Í gær var fjör í bílskúrnum. Ég og Einar vorum allan daginn að vinna í hjólunum og komumst við vel áfram með verkið. Ég er búinn að hækka stýrið hjá mér ennþá meira, búinn að setja grindurnar á fyrir töskurnar, setja "cruise control" á, laga og fínstílla pústið ofl. Svo kl. 16:00 kom Oddur Eiríksson brunavörður, sjúkraflutningamaður og skyndihjálparkennari og fór yfir með okkur ýmislegt sem varðar slys, svo sem beinbrot, liðhlaup, tognanir, hvernig taka skal hjálm að slösuðum manni ofl. ofl. Þetta var mjög lærdómsríkt og gátum við farið vel yfir hlutina. Mikið af þessu höfðum við Einar lært eða kannast við áður, en það er nauðsynlegt að fara yfir þetta áður en maður fer í svona langa ferð og Oddur var okkur einstaklega hjálplegur og maður með mikla reynslu. Einnig fórum við yfir hvað best er að hafa með sér í svona ferð og það kom mér á óvart hvað það er í raun lítið sem þarf til þess að geta bjargað sér. Auðvitað væri best að vera með sem mest, en þar sem pláss er mjög lítið verður að velja vel. Þeir fimm hlutir sem við ákváðum að væru nauðsynlegir, og þá eru lyf og þess háttar undanskilið, eru eftirfarandi: einnota hanskar,- nýtast bæði við viðgerðir á hjólunum og á fólki, skæri,- sem geta klippt í sundur skó, belti og þess háttar, plástra,- nokkrar
gerðir og stærðir, grisjur,- nýtist í allt mögulegt, Sam-spelka,- lítil einföld spelka sem hægt er móta og nota fyrir margskonar brot, tognanir ofl. Þetta er allt ! Eins gott að vera við öllu búinn. Nokkrir komu í heimsókn í gær til okkar og er alltaf gaman að fá heimsóknir. Það er jú hluti af sportinu að hitta aðra hjólamenn og ræða um hjólamennskuna í víðu samhengi. Allir velkomnir í skúrinn hvenær sem er ! Pabbi kom á nýja hjólinu sínu, sem er glæsilegt hjól, Kawasaki KLE500 og sýndi okkur það. Einnig kom tengdapabbi, Jón Hjartarson, og kíkti á okkur sem og Kjartan og Guðrún Þóra systir konunnar minnar ásamt mömmu og tengdamömmu. Dagurinn endaði svo á að fara í glæsilega fermingarveislu til Þórs vinar míns, þar sem dóttir hans, Hanna Mjöll var að fermast. Þór er þúsundþjalasmiður og í veislunni rétti hann mér poka með festingum sem ég nota til að festa töskurnar á hjólð sem hann hafði rennt og lagað fyrir mig. Mikill snillingur þar á ferð. Gleðilegt sumar til allra.
There was a lot going on in the garage yesterday. Einar and I spent the whole day working on our bikes and made a good progress. Ive raised my handle bar even higher than before, put the racks on for the cases, put a cruise control on, fixed the exhaust etc. Then, at 4pm, Oddur Eiríksson came and went over the most important things we needed to know about first aid. He talked about different kinds of accidents e.g. broken bones, dislocation, sprains, how to remove a helmet from an injured man etc. etc. We learned a lot from his visit and we were able to cover a lot of things. Some of this stuff Einar and I had already learned and seen somewhere, but its important to go over these things before heading out for such a big trip like ours. Oddur was the perfect man for the job, with a lot of experience, and was very helpful. We also went over the things needed in a trip like ours and it was surprising how little a man needs in order to manage. Of course it wouldnt hurt having more stuff, but since theres a very limited room we have to make wise choices. The 5 things we agreed on being the most important things, besides medicine and stuff like that, were the following: disposable gloves: can be used to repair the bikes and even people if necessary. Schissors,- that can cut through shoes,belts and similar clothing. Band-Aids Different types and sizes. Gauze,- can be very useful. Splint,- a small, simple splint we could reshape and use for different situations. Thats it! We have to be prepared for everything. A few people visited us yesterday and its always fun to get visitors. A big part of the motorsport is to meet other bikers and discuss the sport. Everyone is welkome to the garage at any time! My father arrived on his new bike, which is a very nice bike, Kawasaki KLE500. My father in law, Jón Hjartarson, also came to visit us along with Kjartan and Guðrún, my wifes sister, my mother and my mother in law. We spent the rest of the day in a very nice confirmation party which my friend, Þór, was hosting. His daughter, Hanna mjöll was having her confirmation. Þór is a handyman og during the party he handed me a bag with clinges he had fixed for me so I can secure my cases on my bike now. Þór is a good example of a genious. I wish everyone a happy summer...
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2007 | 23:31
Kominn heim / Back home
Jæja, þá er ég kominn heim aftur eftir gott frí. Alltaf gott að koma heim. Hér liggja fyrir mörg verkefni og eins gott að bretta upp ermar og hefjast handa við að undirbúning og eins er ferming framundan hjá yngsta syninum, Hauki næsta sunnudag. Dagurinn í dag fór því helst í það að taka úr töskum og ganga frá en síðan hefst fjörið. Það sem þarf að gerast á morgun er eftirfarandi: hafa samband við hollenska tryggingafélagið og reyna að landa því máli, sækja á pósthúsið ábyrgðarbréf sem er frá Svíþjóð og vonandi með Carnet De Passage, tollskjölin. Síðan er að setja af stað vegabréfsáritunina til Rússlands, þar sem þeir vildu ekki taka á móti okkur fyrr, sögðu að það þyrfti ekki. Sumardagurinn fyrsti fer svo í að reyna að klára hjólin alveg. Einar bróðir er langt kominn með sitt hjól og við ætlum að klára mitt líka. Mikill tími fer hjá Einari að hanna og finna lausnir á ýmsum smávandamálum varðandi hjólin. Þegar búið er að finna lausnina er fljótlegt að gera það sama við mitt hjól. Einnig förum við á skyndihjálparnámskeið á fimmtudaginn hjá Oddi Eiríkssyni og mun hann koma heim og fara yfir helstu atriðin sem þarf að kunna og vita og verður það án efa spennandi.
Well, I'm finally back home from a great vacation. It's always good to be home. I need to get a lot of things done before the trip and also my younges son, Haukur, is also having his confirmation this Sunday. I spent most of today unpacking and and getting the house in order but tomorrow the fun will begin. I'm plannig to do the following tomorrow: Contact the Dutch insurance company and try to take care of that business, go get a registered letter from Sweden to the post office - hopefully including the Carnet De Passage, the customs files. Then we have to work on those visas into Russia, since they didn't want to talk to us sooner, they said it was unnecessary. We're going to use the official first day of summer (the 19th) to completely finish the bikes. Einar has come a long way with his bike og we're going to finish mine too. Einar spends a lot of his time designing and finding solutions for various problems concerning the bikes. When he has figured everything out, it's quiet easy to do the same thing again for my bike. We're also going to a first aid course this Thursday at Oddur Eiríksson but he will come to us and go over the most important things we need to know. That will probably be a lot of fun.
Ferðalög | Breytt 20.4.2007 kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2007 | 19:12
Út í bláinn / Out of the blue
Ég veit ekki hvað ég á að segja ykkur í dag, ég er orðinn hálf skrítinn á þessu öllu saman. Ég er að reyna að hugsa ekki of mikið um ferðina á meðan ég er hér á Florida, vegna þess að ég var búinn að ákveða að eyða þessum tveimum vikum í fjölskylduna. Enn það er nú ekki svo auðvelt. Ég hef þurft að kaupa eitt og annað sem við þurfum að nota í ferðinni, aðallega smáhluti, og þar með er ég farinn að hugsa um ferðina ! Herdís benti mér á að ég væri stundum annars hugar og sem dæmi um það, þá gleymdi ég að beygja útaf hraðbrautinni á réttum stað og það kostaði okkur tuttugu mínútna auka akstur ! Ég var ekkert of vinsæll þarna, og aumingja Jón Oddur og fjölskylda sem var á eftir okkur þurftu að elta okkur alla þessa vitleysu. Nokkur önnur dæmi er hægt að taka um þetta. Guðmundur Björnsson læknir, kunningi minn, er hérna á Florida líka, og er hann og vinur hans að spá í að leigja sér hjól hér og hjóla svolítið um Florida skagann. Hann spurði hvort ég vildi ekki koma með þeim og fannst mér þetta frábær hugmynd. Svo hugsaði ég aðeins lengra og að fara að eyða einum eða tveimur dögum í að hjóla með þeim, þá væri ég ekki með fjölskyldunni. Og þar sem ég er nú að fara að hjóla daglega í rúma þrjá mánuði, þá var það nú ekkert erfið ákvörðun að hætta við þetta. Hér er annars sól og blíða og lífið gott og skemmtilegt. Jón Oddur og Eva og þeirra fjölskylda fóru héðan í morgun og erum við búin að eiga frábæra daga með þeim. Við komum svo heim á þriðjudagsmorgun og svo er ferming helgina á eftir og þá byrjar lokaspretturinn ! Nóg að gera. Bless í bili.
I don´t know what I can tell you today. I am a little confused in my head these day´s. I am trying not to think about the trip while I am here in Florida, because I was goint spend the whole time with my family. But this is not so easy, I had to buy a few things for the trip, mostly small items, and while doing that, I think about the trip. My wife pointed out to me that my mind was elsewhere, and for example I forgot to turn on the highway so we had to drive an extra 20 minutes ! I was not very popular then. And our friends, Jón Oddur and family had to follow us all the time. My friend dr. Gudmundur is here in Florida withe his friend, and decided to rent a Harley and ride for one or two days. They wanted me to come with them, and my first thinking war, great ! But after a while I saw that it would not be a good idea, I am going to spend the time with my family, and I will be riding for more than three months in couple of weeks from now. Here the weather is great and life is good. By for now.
Ferðalög | Breytt 14.4.2007 kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)