Færsluflokkur: Ferðalög
8.2.2007 | 12:49
Viðtal ofl. / Interview and more.
Einar bróðir og pabbi komu til mín í gærkvöldi og horfðum við á tvo DVD diska frá svona viðamiklum mótorhjólaferðum. Þetta var mjög gaman og gaf pínulitla innsýn í það hvernig okkar ferð mun verða. Það er greinilegt að ýmislegt getur komið upp á. Í byrjun annarar ferðarinnar voru þeir sjö, en aðeins þrír kláruðu alla leið. Þeir duttu, það var stolið frá þeim, peningarnir kláruðust ofl ofl. Sem sagt mjög spennandi ! En pabbi tilkynnti okkur það að hann er ákveðinn í að fljúga til USA og hitta okkur Einar á vesturströndinni, annaðhvort í Los Angeles eða í San Francisco og hjóla með okkur þvert yfir Bandaríkin og til New York. Hjóla semsagt með okkur síðasta hluta leiðarinnar þvert yfir Bandaríkin. Frábærar fréttir og skemmtilegt. Einnig ákvaðu hann og Tryggvi bróðir að þeir ætli að hjóla með okkur þegar við leggjum af stað frá Reykjavík þann 8 maí til Seyðisfjarðar. Svo hringdi Hrafnhildur Halldórsdóttir á Rás 2 í mig og ætlar að hafa viðtal við mig í morgunþættinum sínum í fyrramálið kl. 7:35. Spennandi.
My brother, Einar and my father came last night and we watched two DVD movies about world tours on motorcycles. This was very intresting and it was good to see some reality and see what can happen on the way. For example, on one of the trip, they started seven of them but only three of them went all the way. But my father also told us yesterday that he is goint to fly to USA and meet us in LA og San Francisco and ride with us over USA to New York. Great news ! Also yesterday, a radio station, Channel 2, contacted me and they want to interview me tomorrow morning.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 12:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2007 | 16:29
Vinnuaðstaðan / Control Center
Þetta er vinnuaðstaðan okkar þar sem við brjótum heilann um hin ýmsu málefni. Þetta er í bílskúrnum hjá mér og þegar hjólin verða komin þarna líka verður kannski svolítið þröngt um bíl frúarinnar ! Það er nauðsynlegt að hafa einn stað þar sem allt dótið er samankomið. Svo er ég með stóra hillu þarna við hliðina þar sem við erum byrjaðir á að safna saman þeim hlutum sem notast í ferðina. Skór, tjald, fatnaður, varahlutir, pottur og panna, primus, svefnpoki, hanskar ofl ofl ofl.........
This is our control center where we plan and organize the trip. This is in my garage and when the bikes arrive the space will decrease. It could be tight for my wifes car !! Then I have a big stand beside the table, where we put all the gear we need for the trip. Shoes, primus, tent, sleeping bags, gloves, clothes, etc, etc..........
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2007 | 15:37
Frétt ! / News !
Í gær hafði blaðamaður samband við mig og vildi taka viðtal við mig vegna ferðarinnar. Að sjálfsögðu tók ég vel í Það. Hann spurði mig heilmikið og ég svaraði eins og ég gat best og svo ræddum við um ferðina í víðu samhengi. Svo sendi hann ljósmyndara til að taka myndir af okkur Einari hjá mótorhjólunum sem við ætlum á. Þar sem okkar hjól eru ekki komin, þá fórum við í Yamaha umboðið og stilltum okkur upp hjá samskonar hjólum og við munum nota. Þetta var bara gaman. Þetta birtist svo í Fréttablaðinu á laugardag eða sunnudag.
Yesterday, a journalist called me and wanted to taka an interview about the trip. Off course I agreed, and he asked me a lot of questions and we talked about the trip for a while. And today a photographer came and took pictures of me and Einar, my brother, beside the motorcycles we are going to use. This was fun and will be printed og Saturday og Sunday.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2007 | 16:43
Kominn heim. / Back home again.
Jæja, þá er ég komin heim aftur eftir góða og skemmtilega ferð til Florida. Mestur tími fór í að spila golf og annað dundur. En stóra ferðin var alltaf ofarlega í huganum og notaði ég því tækifærið og keypti eitt og annað sem vantaði fyrir ferðina. Það helsta sem ég kom með er þetta: Sidi Discovery mótorhjólaskór, Blue Ridge Racing verkfærasett, CyclePump loftdæla, Casio Pathfinder armbandsúr, ( með áttavita, barometer, hæðarmæli og fleiru.) Rússnesska orða og uppflettibók og svo nokkur landakort. Það næsta sem við gerum er að senda vegabréfin okkar til Englands til að fá vegabréfsáritun inn í Mongólíu. Síðan förum við í rússnesska sendiráðið og sækjum um áritun inn í Rússland.
Well I am back home again. We had a fun and cosy trip to USA where we spent most of our time playing golf. But the Big trip was always on my mind, so I used the opportuniti to buy some stuff we need for the trip. What I brought home was this: Sidi Discovery motorcycle boots, Blue Ridge Racing tool kit, CyclePump air compressor, Casio Pathfinder wristwatch ( with compass, barometer, altimeter and other things.) Russian dictionary and some paper maps. The next thing we do is to send our passports to England to get Visa into Mongolia. Then we go to the Russian embassy here in Iceland to get Visa into Russia.
Ferðalög | Breytt 9.2.2007 kl. 11:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2007 | 16:26
Heimsókn til USA / Visit to USA
Lífið heldur áfram og alltaf eitthvað að gerast. Tryggingarmálin eru að byrja að skýrast,- þetta er víst ekki einfalt mál að leysa,- en fékk að vita að þetta mjakast í rétta átt. Hringdi í Smára Rikk til að fá upplýsingar um mótorhjólið hans, því hann á hjól eins og við ætlum á. Við hjóluðum svolítið saman í sumar, - frábær ferðafélagi. En núna er ég að skreppa til Florida, USA, og ætla að vera í viku og njóta lífsins með konunni minni.
Life goes on, and something happens every day. The insurance case is starting to clear up, I was told today that it is not an easy case to solve, but its coming. I called my friend Smári Rikk, to get informations about his motorcycle, because he has the same type we aro going on. Me and Smári travelled a little bit together last summe,- he is a great travel friend. But now I am goint to Florida, USA to meet my wife and enjoy life for a week.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2007 | 17:27
Eitt og annað. / Bits and pices.
Við erum með eitt og annað í vinnslu og annað er í bið. Einar bróðir er búinn að finna réttu græjurnar í hjálmana og er það á leiðinni. Veit ekki enn hvað það heitir en læt vita. Veit bara núna að það fæst í Dynjanda. Einnig heyrði ég í þeim hjá Radiomiðun og ég vænti svars frá þeim í dag varðandi gervihnattasímana. Svo var ég hjá Tóta hjá MótorMax og vorum við að fara yfir það hvaða hluti við þurfum að panta á hjólin. Það sem við pöntum er eftirfarandi: Grind fyrir töskurnar, bæði hliðar og topptösku, hærra gler, upphækkun á stýri, stærri bensíntank, 26 lítra, nýtt pústkerfi - 2 í 1, tanktösku, upphækkun á afturfjöðrun, handhlífar á stýri, hlíf undir mótor. Sumt af þessu eru orginal Yamaha hlutir, en annað pöntum við frá OTR, sem fyrirtæki í Þýskalandi og sérhæfir sig í XT660R. Hjólin ættu að koma til landsins um miðjan febrúar og vonandi aukahlutirnir á svipuðum tíma.
We have few things going but others are on hold. My brother, Einar found the right equipment for the helmets, that is, speakers and mic. I still not know the brand, but I let you know. Also this morning I talked to Radiomiðun, the company that hopefully will lend us the Iridium satelite phones. They said they would give me an answer later today. Then I had a meeting with Tóti, the boss of the Icelandic Yamaha dealer, about the parts we need to order to make the motorcycles ready. What we are ordering is this: Luggage system for the side bags, and top case, bigger wind screen, handle bar raiser, bigger fuel tank, 26 ltr, new exhaust 2 in 1 system, sump guard, crash bar, and handguards. Some of this items are original Yamaha, but the other items we order from OTR in Germany. The motorcycles should arrive in the middle of February.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2007 | 16:52
YAMAHA XT660R !
Jæja, þá er það loksins ákveðið ! Við munu hjóla á Yamaha XT660R árg. 2007 ! MotorMax sem eru með Yamaha umboðið á Íslandi hafa ákveðið að taka þátt í þessu ævintýri okkar og ætla að láta okkur fá 2 stk ný mótorhjól með öllum þeim búnaði sem til þarf. Þetta er mjög rausnalegt hjá þeim og verður skemmtilegt að vinna með þeim. Yamaha XT660R er frábært hjól byggt á gömlum og traustum grunni og hefur verið notað mikið í gegnum tíðina til ferðalaga um allan heim. Nú förum við í það að fá alla aukahluti sem við þurfum til að gera hjólin klár. Sem dæmi um breytingar sem við gerum er: Stærri bensíntankur, hlíf undir mótor, upphækkun á stýri, setja á grind fyrir töskur og farangur, stærri vindhlíf ofl ofl. Segi meira frá þessu þegar þar að kemur.
Finally, the decission is made, we are going to ride on Yamaha XT660R, 2007 ! The Icelandic Yamaha dealer, MotorMax, is going to support us, and give us two of these great bikes, with everything we need to get the bike ready for the trip. We are wery happy about this and look forward to work with them in the future. Yamaha XT660R is well known, and are used all around the world for travelling. Now we start to prepare the bikes for the trip, and order the accesories that we need, for example, bigger fuel tank, engine guard, bigger windscreen, luggage system, etc. etc. Tell you more when times come.

Ferðalög | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.1.2007 | 16:29
Japan - Alaska
Jæja, þá fengum við þær fréttir í dag að það er flug á milli Japan og Alaska á hverjum degi ! Þetta er að vísu cargo flug, þannig að trúlega getum við ekki flogið með sömu vél. En þetta eru samt góðar fréttir, því það er einfalt fyrir okkur að fljúga svo með áætlunarflugi með lítinn sem engann farangur. Einnig kom upp sú hugmynd að leigja vél sem flytur okkur frá Magadan til Alaska, hjól og menn, og geta þá farið Road of bones, eins og okkur langar til. Við fengum þær upplýsingar að þetta væri ekki svo dýrt, en við erum að láta athuga það betur. Allavega er gott að fá þetta á hreint með Japan - Alaska, því þetta er það eina sem við vorum ekki komnir með neina niðurstöðu í. Flest annað er að minnsta kosti komið í einhvern farveg og tímaáætlun. Á morgun ætti að skýrast endanlega með það á hvaða mótorhjólum við förum. Spennandi !!!!! En nóg í dag.
Well, today we got great news. We where told that it is a cargo flight daily from Japan to Alaska. But I don´t know if we can fly in the same plane. But if not, we just take the normal scheduled flight from Japan. Another idea came up, that we rent a charter flight from Magadan to Alaska. Someone told us that it does not cost so much. That would be great, because then we can ride Road of bones, as we want to. Bun anyway, good news today. Tomorrow we should get a final decision about the motorcycles. What type will we ride !! Exiting !!!! But enough today.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2007 | 15:01
Garmin GPSmap 278
Jæja, þá erum við búnir að ákveða hvaða GPS staðsetningartæki við förum með. Fyrir valinu varð tæki frá Garmin sem heitir 278C. Þetta er frábært tæki í alla staði og hentar vel fyrir svona hjólamensku. GPSMAP 278C er eitt með öllu. Þetta er eins tæki og 276C en er að auki með innbyggðu Evrópukorti (City Navigator Europe V9) ásamt fleiri aukahlutum eins og auka festingu, straumsnúra m/ hátalara,baunapoka fyrir festingu, Evrópukort á disk, skjáhlíf. Þessi fjölhæfi lita GPS plotter er einnig með vegleiðsögumöguleika, auk þess sem hann gefur möguleika á tengingu við hátalara fyrir raddleiðsögu. 278C kemur með endurhlaðanlegri lithium rafhlöðu. Tækið er með 256-color TFT auðlesanlegum litaskjá. Umboðsaðili Garmin á Íslandi, R. Sigmundsson, voru svo rausnalegir við okkur að lána okkur tvö svona tæki til hafa með í ferðina. Við þökkum kærlega fyrir okkur. Síðan skruppum við í Intersport og keyptum PrimusOmni, sem er svokallaður multi fuel primus, þ.e. primus sem brennir nánast hvaða eldsneyti sem er, bensín, gas, disel, parafin, flugvélabensín ofl. Þannig getum við alltaf verið með eldsneyti, notum þá bara bensín af hjólunum. Einnig keyptum við okkur dýnur til að liggja á. Þunnar, litlar og léttar loftdýnur frá McKinley.
Finally, we have decided wich GPS we are going to use. We choose a GPS from Garmin, the GarminMap 278C. This is a great GPS with all the basic stuff, and also the AutoRoute feature wich is great in citys. The Garmin dealer here in Iceland is going to sponsor us and lend us two of this great GPS. We appreciate that very much.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2007 | 17:54
Dagurinn í dag / Today
Við bræður vorum sammála um það í dag hvað tíminn flýgur hratt og hvað í raun er margt sem er eftir að gera. Ég fór á nokkra staði í dag til að skoða dekk, athuga með aðra tegund af skófatnaði til að hjóla í, kíkja á prímus sem brennur öllu eldsneyti ofl. ofl.
Sem sagt ótrúlega mikið af stórum sem smáum hlutum sem þarf að sinna og eitthvað að þeim þarf að fara að klára. Ekki er endalaust hægt að spá og spekulera. Það hefur frestast ákvörðun okkar með hvaða mótórhjól við veljum en vonandi skýrist það núna fyrir helgina.
Me and my brother agree on how time is flying by so fast and how many things have to be done. I went to several places today to look at tires, see if I could find another type of shoes to ride in, looked at multi fuel primus etc. etc. So many small and big things to do and we do have to finish some of them as soon as possble. Our decision about what kind of motorcycles we shall choose have been delayed but hopefully that will come clear before end of the week.
Ferðalög | Breytt 16.1.2007 kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)