Færsluflokkur: Ferðalög
14.12.2006 | 20:48
Góðir vegir !!! / Great roads !!
Rakst á nokkrar myndir frá hinum þekkta og langa vegi í Síberíu "Road Of Bones", sem liggur á milli borganna Yakutsk og Magadan. Vegurinn er frekar illa farinn og hefur ekkert verið viðhaldið í mjög mörg ár. Þessi vegur var byggður á tímum Stalíns af pólítískum föngum. Vegurinn er um 2000 km langur og eru nokkrar ár á leiðinni, sumar óbrúaðar og aðrar með lélegum eða ónýtum brúm. Það er sagt að fyrir hvern metra af veginum, sé einn fangi grafinn í veginn. Þannig að það er talið að um 2.000.000 manns hafi látið lífið við að leggja þennan veg !!!. - Já TVÆR MILLJÓNIR manna !!!. Þannig að margir vilja friða þennan veg og umgangast hann sem grafreit. Ég setti nokkrar myndir af veginum og umhverfinu í myndaalbúmið svo þið getið skoðað þær þar.
I came across some pictures of the infamous "Road of Bones" in Siberia between the cities Yakutsk and Magadan. The road is in a bad condition and hasn't been maintained for many years. The road was built by polotical prisoners in the times of Stalin. It's about 2000 km long with several rivers along the way, some not even bridged and others with bridges in critical conditions or completely ruined. The story sais that for every meter, one prisoner died and was buried into the road. If that is true, about 2,000,000 people died by making the road! Yes, you heard me right, TWO MILLION PEOPLE!! Many people want to preserve this road and treat it like a burial ground. I put some pictures of this road and it's environment into my photo album (myndaalbúm) so you can take a look at them there.
Ferðalög | Breytt 17.12.2006 kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2006 | 11:22
Nýjar græjur !! / New equipments !!
Var að panta mér frá USA alveg frábært verkfærakit sem er sérhannað fyrir mótorhjólamanninn. Allt saman í sterkri og góðri tösku sem hægt er að festa á hjólið eða hafa utam sig. Í þessu kitti er nánast allt sem þú þarft til að laga og nánast gera upp eitt stykki mótorhjól. Þetta kemur frá fyrirtæki sem heitir Blue Ridge Racing og sérhæfir sig í svona pökkum.
Einar bróðir keypti svona í vor og er því búið að sanna sig hér hjá okkur í sumar.
I just put in an order for a great tool kit from USA which is exclusively made for the biker. Everything is placed in a good cover which can be attatched to the bike or yourself. Almost everything I need to fix whatever malfunction of the motorcycle there is, is in this kit. This product is made by a company called Blue Ridge Racing and it specializes in kits like this one.
My brother, Einar, bought the same kit last spring and it has proven itself good in our trips this summer.
Ferðalög | Breytt 17.12.2006 kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2006 | 18:00
Góðar fréttir ! / Good news !
Fékk góðar fréttir fyrir stuttu,- Einar bróðir stefnir á að koma með mér í ferðina, allavega Asíu hlutann, sem er jú hættulegasti kaflinn í ferðinni. Það er mjög gott að hafa Einar með sér því við erum vanir að hjóla saman og það eykur öryggisþáttinn í ferðinni mikið og eykur þar með líkurnar á að ferðin heppnist vel. Að sjálfsögðu langar hann að koma með mér alla leiðina og vona ég að hann geti það, - kemur í ljós.
Nú er ég í fullri vinnu við að reyna að finna góð kort af þeim löndum sem ég heimsæki. Mikið er til af kortum, en þau eru misgóð og ef einhver veit hvar bestu kortin fást, þá endilega láta mig vita. Ekki fást þau hér á Íslandi, það veit ég, þannig að ég leita á netinu og með því að spjalla við menn.
Nóg í dag.
I received very good news just a moment ago; My brother, Einar, is going to try to join me on my journey around the world. At least, he is going to ride with me through Asia which is the most difficult and dangerous part of the trip. It's very good to have Einar along with me because we are used to traveling together and it also increases the security and the odds of a sucessful trip. Of course he wants to go the whole way around the world and I hope he is able to do that.- We'll see
I'm trying to find quality maps of the countries I'm going to be visiting. There are a lot of maps available but most of them are not useful and if somebody knows where I can get good maps the please let me know. The only thing I know is that I can't get them here in Iceland so I have to look over the internet and talk to people who can help me.
Ferðalög | Breytt 17.12.2006 kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2006 | 16:32
Sprautur !!! / The doctor !!!
Nei, ekki alveg strax. En er búinn að panta tíma hjá lækninum mínum og mæti hjá honum á mánudaginn. Mér skilst að ég þurfi þó nokkrar sprautur og það taki nokkrar vikur eða jafnvel einhverja mánuði að klára svona prógram. En meira um það seinna.
Fékk nokkur símtöl í gær varðandi skyndihjálparnámskeið og svo virðist sem að ég komist í samband við aðila sem getur kennt mér allt um skyndihjálp og einnig námskeið sem heitir Wilderness survival. Þetta hljómar spennandi og mun hjálpa mikið.
Og þá er loksins byrjaður að taka til í bílskúrnum. Þar ætla ég að koma mér upp góðri aðstöðu til að undibúa mig. Stór borð og gott veggpláss fyrir landakort, góðar hillur fyrir allan búnað sem ég er byrjaður að viða að mér, og einnig ætla ég mér að setja þar upp tölvu og síma. Þetta er allt í vinnslu.
Viðbrögð hjá fólki þegar það heyrði eða frétti að ég væri að fara þessa ferð eru skemmtilega mismunandi. Sumir hneykslast og skilja ekkert í mér, aðrir eru stórhrifnir og myndu gjarna vilja koma með og svo allt þarna á milli. Það er gaman að ræða þetta og heyra ýmis sjónarmið og að sjálfsögðu eiga öll sjónarmið rétt á sér. Gaman væri að heyra frá fleirum hvað fólki finnst. Aðeins þarf að smella á "athugasemdir" sem er strax á eftir hverri færslu.
Gott í bili.
I'll have to get a lot of injections (inoculations etc.) before I can enter all the different countries I plan to. But it's going to take a lot of time to get this done but I'm working on it now. I've already scheduled an appointment with a doctor and I'll be seeing him soon. More about that later.
I received a few phone calls concerning first aid courses and it looks like there's a men who is willing to teach me everything I need to know about first aid and there is also a course called "Wilderness Survival" which sounds very interesting. This is going to be of much help.
I've finally started to organize the garage. I'm going to set up a good place for me to prepare for the trip. I'll have a large table and a good space on the wall for maps, good shelves for all my equipment and I'll also set up a computer and a telephone there. It's all in the process.
It's amusing to see how different people's rections are when they hear that I'm going around the world on my motorcycle. Some people are shocked and cannot understand why I decided to do this. Others are delighted and tell me how much they would want to join me on the trip. These are the two extremes and there is also everything in between. It's fun to hear everybody's opinion and see all the different views on the subject. Of course no one is wrong in their opinions and it would be nice to hear more of what people think of this. You only have to click "athugasemdir" (comments) at the end of every blog
Ferðalög | Breytt 17.12.2006 kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2006 | 17:12
Skyndihjálp ofl. / First aid etc.
Ég er búinn að reyna að ná í menn í dag til að finna gott skyndihjálparnámskeið. Það er nauðsynlegt fyrir mig að læra sem mest varðandi skyndihjálp. Fótbrot, handleggsbrot, bruni, svöðusár, ofl, allt getur gerst. Ég þarf að læra að sauma sjálfan mig saman, búa sjálfur um beinbrot ofl. Mér skilst að sum þessara skyndihjálparnámskeiða hjá Rauða krossinum séu of einföld fyrir mig, þ.e. ungir krakkar að kenna og lesa bara beint upp úr bókinni. Þá get ég alveg eins lesið hana sjálfur. Er að vinna í þessu.
Er enn að reyna að hafa upp á ræðismanni Mongólíu til að komast að því hvernig ég fæ vegabréfsáritun inn í landið. Erfitt að ná í hann.
Meira seinna.
Today I've been trying to contact people who could help me finding a good first aid course. It's necessary for me to learn as much as I can about first aid. Broken bones, burns, gashes etc., everything could happen! I have to learn how to stitch myself up, handle a fracture etc. I'm told that many of the Red Cross' first aid courses are too simple for me i.e. young kids are simply reading from a first aid instruction book. If that's the case I could just read the book myself. But I'm working on this.
I'm also still trying to get a hold of the Mongolian consul to find out how I'm going to get a visa into the country. It's very hard to reach him.
Ferðalög | Breytt 17.12.2006 kl. 23:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2006 | 12:26
Margt að varast ! / Ba aware !
Nú er ákvörðunin tekin, og undirbúningur hafinn. Að fara svona langferð krefst mikils undirbúnings og í mörg horn að líta. Vegabréfsáritanir, tryggingamál, leyfi fyrir mótorhjólið, útvega kort, ákveða nákvæma leið, hvar á að gista, hvað á að taka með og hvað ekki, læra að skrúfa mótorhjólið sundur og saman, varahlutir, gjaldeyrir fyrir hvert land, flug og flutningar ofl. ofl. ofl........... Nú fer öll þessi vinna af stað og veitir ekki af tímanum. Konan mín hjálpar mér mikið í þessum málum, en finnst það á vissan hátt erfitt að hjálpa mér og styðja, því um leið er hún smeik og með áhyggjur af þessari ferð minni. Það er skiljanlegt því margt getur gerst á svona löngu ferðalagi. Maður getur dottið einu sinni illa og ferðin er búin ! Þjófnaður og alls kyns hyski eru á ferð þarna úti. Nú svo eru skógarbirnir og mosqito flugur í Síberíu sem geta gert manni lífið leitt. Ef maður dettur illa t.d. á fáförnum slóðum í Rússlandi eða Mongólíu, þá tekur maður ekki upp símann og hringir í 112 og biður um að láta sækja sig !!! Þetta er ekki alveg svo einfalt. Maður er algjörlega einn !!! Enn þetta er það sem gerir svona ferð líka spennandi, fyrir utan að sjá ný lönd og nýtt fólk sem kemur úr öðru umhverfi og öðrum menningarheimi.
En nóg í dag.
Now when the decision has been made, the preparation has begun. This type of journey requires a lot of preparation and there are many things I have to take in to concideration. Visas, insurance, approval for the motorcycle, finding the right maps, deciding the exact way I'll be going, where to spend the nights, what I should take with me and what I shouldn't, learn how to fix every single type of malfunction of the motorcycle, spare parts, currency for each country, flights, transportation etc. I have to start working on this as soon as possible because I'll definitely need the time! My wife is a big help for me in the preparation even though it's hard for her,in a way, to support and help me with something that can be this dangerous. Her fear is very understandable because many things could happen during the long journey. I could simply have a single bad fall and the whole journey is over! I also have to watch for thiefs and other bad people on my way. And I can't forget about the brown bears and the mosquitoes in Siberia. If I will get injured or stuck in the lonely paths of Russia or Mongolia I can't just pick up the phone, dial 911, and ask them to please pick me up. It's not that simple because I'll be completely by my self and on my own. But that's also what makes the journey so exciting, plus experiencing all the various things the countries have to offer and seeing all the people from different environments and different cultures.
Ferðalög | Breytt 17.12.2006 kl. 23:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2006 | 13:19
Ákvörðun tekin ! / Decision made !
Loksins búinn að taka ákvörðun eftir margra mánaða umhugsun, kvöl og pínu. Á mótorhjóli kringum hnöttinn ! Þessa ferð hef ég haft í kollinum á mér í marga mánuði og sé fram á að komast hana næsta vor. Þetta er stór ákvörðun og ég hef ákveðið hér með leyfa áhugasömum að fylgjast með mér, undirbúningi þessarar ferðar og vonandi allri ferðinni. Fyrir liggur að næstu 3 - 4 mánuðir fari í undirbúning sem er ansi mikill en jafnframt nauðsynlegur. Skýri það síðar. Ferðin sjálf mun svo taka svipaðan tíma.
Er ekki tilbúinn með allt hér og nú á þessari bloggsíðu en kem til með að setja inn nánari upplýsingar og það sem til fellur síðar.
Ég veit ekki til þess að nokkur annar Íslendingur hafi mótórhjólað kringum heiminn en ef svo er væri gaman að heyra um það.
I have finally decided after many months of consideration ! To ride alone on motorcycle around the world. I have been thinking about this trip for many months and my plan is to go next spring. This is a big decision and I have decided to write about my preparation and hopefully all the trip for interested people. I will need 3-4 months to prepare this trip wich is long but necessary. Will exlpain that later. The trip will then take similar time. I am not ready with everything now on my blog but I will later put in more details and information. I do not know that any other icelandic person have done that, ride around the world but if so it would be nice to hear about it.
Ferðalög | Breytt 17.12.2006 kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)