Færsluflokkur: Ferðalög
28.1.2014 | 10:32
Round the World 2007
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2007 | 10:26
Kominn heim ! / Back home !
Það er víst liðnar rúmar fjórar vikur frá því að við bræður komum heim til Íslands eftir ferðina góðu, en mér finnst eins og það hafi verið í gær. En það sem meira er, mér finnst ég fyrst núna vera að lenda með báða fætur á jörðinni ! Indiánar segja að það taki sálina daga og jafnvel vikur að komast á leiðarenda, eftir að maður sjálfur er kominn. Ég er ekki frá því að þetta sé bara satt. Undanfarnar vikur hafa verið skrítnar að þessu leyti og ég hef oft litið á landakortið og / eða myndirnar sem ég tók í ferðinni og klipið mig svo í handlegginn og sagt við sjálfan mig, " já, ég var raunverulega þarna, ég er búinn að fara hringinn í kringum jörðina ! " Þetta er mjög skemmtilegt og það er gamann að blaða í gegnum dagbókina mína og sjá hvað var um að vera í hausnum á manni á hinum og þessum staðnum á leiðinni. Suma daga fóru átta blaðsíður í að skrifa um atburði dagsins, en aðra daga bara 5 línur ! Og stundum var jafnmikið um að vera innan dagsins, en ég kannski ekki eins stemmdur andlega. En þessi ferð á líklega eftir að meltast lengi og mun ég njóta þess.
Now there are over four weeks since we came back from the big trip around the world, but it feels like it was yesterday. But what is strange, that it is first now that I feel that I am realy back, - with both feet on ground ! There is an old saying among indians, that it takes the soul weeks or month to arrive, after you self has arrived. I truly belive that now ! Last couple of weeks has been very strange and I have looked on the map of the world a few times and pinch me in the hand to convince me of that this was not a dream ! yes, I really did this, rode around the world ! I have also been reading alot from my diary and it is fun to read what was on my mind the moment I wrote that page. But it will take along time to digest all the things that happend and I will enjoy that to the fullest.
Fallegasta listaverk heimsins er náttúran ! Ekki gleyma að njóta þess.
Ferðalög | Breytt 26.11.2013 kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2007 | 10:51
Smá brot úr ferðinni ! - myndbönd.
Þessi bútur er tekinn í Rússlandi í littlu þorpi rétt áður en við fórum inn í Mongólíu. Við gistum þarna í úthverfi þorpsins í óupphituðu gömlu húsi og hitastigið var um 3 gráður á celcius.
This clip is from a small village in Siberia, a few miles from the Mongolia border.
Og hér eitt annað sem er frá Mongólíu.
And here is another from Mongolia.
Svo vil ég minna ykkur á að nú fer eitthvað að gerast varðandi myndasýninguna. Hún verður mjög fljótlega. Þessi eða næsta vika. Fylgist með hér á síðunni.
Ferðalög | Breytt 5.3.2008 kl. 20:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2007 | 10:20
Viðtalið á Rás2 í morgun við Hrafnhildi og Gest.
Alltaf skemmtilegt að fara í heimsókn til þeirra í morgunútvarpinu á Rás2 og spjalla um ferðina okkar. Gestur og Hrafnhildur eru alltaf jafn hress og kát. Mér er að takast það í rólegheitunum að kenna þeim að spila svolítið meira af country tónlist því það er tónlist sem höfðar til mjög margra. En smellið á linkinn hér fyrir neðan til að hlusta á viðtalið eftir gamla Denver laginu, Back home again í flutningi Trishu Yearwood.
http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4331584
Ferðalög | Breytt 21.8.2007 kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.8.2007 | 10:31
Kastljósið í gærkvöldi / The tv lastnight
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2007 | 22:33
Heimsreisan á enda !!! / Round the world is over !!!
Ótrúlegt en satt, kominn heim og búinn að upplifa drauminn. Draum sem fæddist fyrir nokkrum árum síðan og sem varð að veruleika í desember þegar ég tók þá ákvörðun að verða fyrstur Íslendinga til að fara hringinn í kringum hnöttinn á mótorhjóli. Þessi ákvörðun hefur verið ein sú skemmtilegasta sem ég hef tekið og ennþá ánægjulegri sú staðreynd að Einar bróðir skyldi slást í hópinn. þessi heimsreisa okkar stóð í 95 daga og eknir voru 31.946 km svo nákvæmlega sé sagt frá. Hjólin okkar, Yamaha XT 660 R hafa staðið sig hreint frábærlega og það yrði ekki mikið mál að halda í aðra reisu á mánudaginn þegar búið væri aðeins að skipta um olíu og olíusíu, keðju og tannhjól og bremsuklossa.
Ég hef sagt það í viðtölum að Mongolia sé eftirminnilegasta landið sem við höfum heimsótt en eins og staðan er í dag er svo margt sem stendur uppúr og svo ótrúlega margt sem ég hef séð og upplifað sem ekki er alltaf hægt að skýra með orðum. Þessi ferð okkar bræðra hefur í stuttu máli verið mikið ævintýri, stundum tekið vel á því, mjög oft erfitt, oft þreyttir, oft endurnærðir, stundum pirraðir, oft óumræðanlega hamingjusamir og allt þar á milli. Í morgun heyrði ég töluvert frá fólki að því hafi fundist allt hafa gengið svo vel og auðvitað er það satt og rétt, en þar sem við vorum mjög vel undirbúnir og erum mjög hæfir að takast á við vandamál og erfiðleika sem uppá koma, þá gekk allt vel hjá okkur og vandamálin urðu bara að verkefnum sem við leystum. Það sem einn lítur á sem vandamál lítur annar á sem verkefni og það tel ég okkur bræður hafa gert. Ég er svona að bræða það með mér hvort ég verði ekki að útbúa myndasýningu því svo margir áhugasamir hafa haft samband sem myndu vilja sjá myndir úr ferðinni. Hugsa það mál á næstu dögum.
Síðasti dagurinn í New York var frekar langur að líða en við þreyttum tímann með að fara í bíó og horfa á mannlífið. Ég hef fengið nokkrar skammir fyrir að upplýsa ekki hvernig ég hitti frægu leikkonuna Söruh Jessicu Parker, en sorry..gat ekki alveg upplýst það þá því ég ætlaði að færa konunni minni áletrað ilmvatn og fleira flottery frá henni en þetta var ekki merkilegra en það en að ég fór í biðröðina í Macys og þar hitti ég semsagt dömuna og spjallaði bara þó nokkuð við hana og keypti þessa líka fínu gjöf fyrir frúna ! Og er þá þetta leikaramál hér með upplýst. En ferðin heim gekk vel og vorum við heppnir með að fá góð sæti bræðurnir og gátum teygt úr okkur og létum fara vel um okkur en eitthvað gekk mér illa að sofna og líklegast var það spenningurinn við það að koma heim sem olli því. Það var hreint ólýsanlega gaman að koma í gegnum tollinn í morgun og sjá litlu blómarósina mína, afhenda okkur fallega gula rós og hitta alla fjölskylduna sína. Hver vegur að heiman er vegurinn heim segir í laginu og það má með sanni segja að frá fyrsta degi sem við lögðum að stað þá hefur leiðin legið heim og það er mikill léttir að hafa komist frá þessu ævintýri heill á húfi. Hrafnhildur á Rás 2 var mætt í morgunsárið og tók létt viðtal við okkur bræður og pabba sem var ótrúlega kátur með sinn hlut og má hann eiga það og Skúli líka að þeir stóðu sig rosalega vel og gaman að fá þá með í síðasta hlutann. Einn af öðrum mótorhjólamönnum renndu svo í hlað á Leifstöð og mikið fannst mér það gaman að fá þessa fylgd í bæinn af kátum mótorhjólamönnum og konum. Það voru 29 mótorhjól sem fylgdu okkur lokasprettinn. Tryggvi bróðir hafði séð til þess að við gætum sótt hjólin í geymslu hjá Icelandair Cargo og hefur hann aðstoðað okkur mikið með flutningana og erum við honum mjög svo þakklátir. Uppúr klukkan 9 lögðum við svo að stað í bæinn og stefnan var sett á Mótomax og þangað komum við rétt yfir kl. 10 og þar fengum við aldeilis frábærar viðtökur af Mótormaxfólki, ættingjum, vinum og áhugafólki um mótorhjól og ferðina og vil ég bara þakka öllum sem komu kærlega fyrir mig og þakka kærlega fyrir allan stuðninginn sem ég og við höfum fengið þessa síðustu 3 mánuði. Það hefur verið ómetanlegt að hafa þennan stuðning og gaman að vita til þess að þessi ferðabloggsíða mín hafi verið mörgum góð skemmtilesning.
Ég á nú örugglega eftir að setja inn fleiri myndir inn á bloggið en nú líður samt að lokum þessarar ferðasögu minnar en það hefur verið mjög svo skemmtilegt að geta haldið út nokkuð jafnt og þétt ferðalýsingum og fleiru fyrir ættingja og vini og annað áhugafólk um mótorhjól og ferðamennsku.
En þangað til næst - ÞAKKA FYRIR MIG !!!
Viðtalið á Rás 2 í morgun..aftarlega og út í enda.
http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4331579
Fréttin á mbl.is
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1284740
Were home and a big dream has become a reality, unbelievable but true! Ive had this dream for several years now but I decided to attempt to fulfill it in Desember when I started preparing for this trip. This has been one of the best decisions Ive made so far and it was even better to get Einar with me. This trip took 95 days and we travelled 31.946 km so be exact. Our bikes, Yamaha XT 660 R have been great and it wouldnt be a problem taking another trip like that on them. Ive told people that Mongolia was probably the most memorable country but there are so many highlights from this trip that I couldnt possibly pick on thing and I cant describe it in words. In few words, this trip has been a great adventure where we go from being angry and irritated to being increadably happy and amazed. I heard people saying that everything went very well for us and thats of course true. But we were of course well prepared and qualified to tackle all problems. What one sees as a problem, another sees as a challange and thats what Einar and I did. Im also wondering if I should do a slideshow because many people are interesting in seeing more pictures from the trip. Ill see what I can do. The last day in New York was really long but we killed time by going to the movies and being around people. People werent too happy about it when I didnt want to say why I met the famous Jessica Parker and Im sorry...I just coulnt tell you because I was going to bring my wife a signed perfume and other things and I couldnt give that away. So it wasnt more exciting than that, I just went in line at Macys where I met the actress and I talked to her for a while and bought this present for my wife. So thats that. But the trip home went well and we got lucky with the seats so we had enough room but we couldnt sleep though. Probably all the excitement. But it honestly was a great feeling to walk through the arrival gate and see my little girl, where she then gave us all a yellow rose, and my family. The road away from home is the road back home, says in an Icelandic song and Ive got to say that from day one Ive been on my way home again and Im happy to get away from accidents and injuries. Hrafnhildur, from Channel 2, was at the airport early in the morning and interviewed us all, me, Einar, dad and Skúli. Dad was really happy about everything and Ill give him and Skúli that they did a really good job and it was really fun to be with them the last km. Other bikers showed up at the airport too and it was a lot of fun to have them following us to MotorMax and to the finishline. There were 29 motorcycle following us from Keflavík to Reykjavík. Tryggvi, our brother, made sure that we could get our bikes from Icelandair Cargo and hes been a great help during the trip with the transportation and were very grateful. We started the bikes around 9 am and we got to MotorMax around 10 am where we got a really nice and warm welcome from all the people there, relatives, friends and the people at MotorMax. I just want to thank everybody for their support and its nice to know that some people have enjoyed my blog. Im probably going to put some more pictures on the blog but this is probably the end of my travelling story. Its been a lot of fun to blog regularly for friends, relatives, bikers, and travelling enthusiast. But until next time Thanks for everything! =D
Ferðalög | Breytt 12.8.2007 kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.8.2007 | 19:46
Rás 2 í morgun / The interview this morning
Hér að neðan er linkur inná síðasta fimmtudagsviðtalið við Rás 2 í morgun. Aftarlega eftir uppáhaldslaginu mínu með Alan Jackson. Hrafnhildur ætlar svo að mæta snemma í Leifsstöð í fyrramálið með beina útsendingu og vonandi sé ég ykkur sem flest í Mótormax um kl. 10.
http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4331578
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.8.2007 | 07:39
Síðasti dagur í heimsborginni og næstsíðasti dagur ferðarinnar !!!
Hvorki ég né Einar gerum okkur almennilega grein fyrir því hvað við erum búnir að upplifa síðustu þrja mánuði ! Ég sá á netinu í gærkvöldi fréttina sem send var út á ríkissjónvarpinu og þegar ég sá fréttina flaug í gegnum höfuðið á mér, " mikið hefur þetta verið skemmtileg ferð, gaman væri að fara svona ævintýraferð einhvern tímann ! " Ég semsagt trúði því engan veginn að þetta væri ég og Einar sem vorum þarna að fara í gegnum allt þetta skemmtilega og spennandi ævintýri. Það var skrítið að horfa á þetta " hinum megin " frá, og við höfum oft síðustu daga litið á hvorn annan, brosað og sagt, jú, við erum að verða búnir að þessu. Það er svo margt sem við höfum upplifað í þessu ferðalagi, að ég er enn og á trúlega eftir að vera lengi að melta þetta allt saman. En mikið er þetta nú gaman samt. Nú er bara ca sólarhringur eftir þar til við lendum í Keflavík og verður hver klukkustund lengri og lengri og mínúturnar lengi að líða. Dagurinn í dag leið svipað og í gær, það er, ráfa um götur og verslanir New York borgar, og njóta þess að horfa á mannlífið og kaupa eitt og annað smávegis. Mamma og Pabbi búin að haga sér eins og fyrirtaks túristar og fara í Empire state bygginguna og út í eyju þar sem frelsisstyttan er. En því miður komust þau ekki upp í frelsisstyttuna, því enginn hafði sagt þeim, að nú þarf að panta með tveggja daga fyrirvara, ef maður ætlar að fara upp ! Fúlt fyrir þau. Trúlega er þetta gert af einhverjum öryggisástæðum, en jafn fúlt fyrir það. Allt Bush að kenna ! Borðuðum góða og stóra steik í gærkvöldi og héldum upp á 48 ára brúðkaupsafmæli mömmu og pabba og að sjálfsögðu um leið ævintýri okkar Harley bræðra og okkar Einars. Það var virkilega gaman og ekta góð amerískt steik er jú alltaf góð, og að sjálfsögðu gott rauðvín með. Þetta var gamalt og þekkt steikhús, sem heitir Frankie & Johnnie, og voru áritaðar myndir um alla veggi af stjörnum sem hafa borðað þarna. En talandi um stjörnur, eins og kom fram í blogginu í gær, þá hitti ég fræga leikkonu og lofaði að segja ykkur seinna frá því hver það væri. Þessi leikkona lék aðalhlutverkið í þáttunum Sex and the City og heitir Sarah Jessica Parker ! Og þá vitið þið það. Herdís konan mín, hundskammaði mig fyrir að segja ekki strax frá því hver þetta var, og hér með kemur það ! Skemmtilegt að hitta hana og spjalla við hana. Hver ástæðan er fyrir að við hittumst, kemur síðar ! Ekki klára allan pakkann strax ! En að lokum þetta :
Komum heim í fyrramálið og leggjum af stað frá Leifsstöð í Keflavík kl. 09:00, eða um það bil og verðum komnir til Reykjavíkur við verslun MótorMax um kl. 10:00, þar sem við endanlega klárum hringinn okkar stóra.
Neither Einar nor I have actually realized what weve experienced the last 3 months. I saw the story about us on the news and while I was watching it some thoughts crossed my mind such as Wow, this trip looks amazing, it would be increadable to do that sometime! So it was like I wasnt realizing that it was actually me and Einar who were doing all these things in the story and it was a little strange to watch it from the other side. Weve have truly experienced so many great things during the trip, and I say that even though I probably havent realized everything yet. But its only around 24 hours until we land in Keflavík now and each hour takes longer to pass now. Today was similar to yesterday, just wondering around and looking in some shops and just enjoying being there. Mom and dad have been acting like true tourists and have visited the Empire State building, and to the statue of liberty. They werent able to get up to the statue of liberty because nobody had told them that they had to order with two days notice, probably for security reasons.But we had a good steak last night and celebrated the 48th wedding anniversary of mom and dad, and of course our adventure too. It was really fun and the steak was a real American steak and we drank some wine with it. It was an old and famous steakhouse called Frankie & Johnnie, and there were signed pictures on all the walls of famouse people who have eaten there. Talking about stars, like I said yesterday, I met a famous actress and promised to tell you later who it was. This actress had the leading part in Sex and the City and her name is Sarah Jessica Parker!! So now you know. My wife, Herdís, didnt like it so much when I didnt say who it was so Id better do it now. But why I was talking to her Im not going to tell you until later. But finally:
Well be landing in the morning and well leave the ariport in Keflavík at 9 am. We will then be at MotorMax at 10 am where well finally finish the great journey.
Ferðalög | Breytt 10.8.2007 kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.8.2007 | 22:28
Sjónvarpið í kvöld / The tv tonight.
Var í spjalli á RÚV í kvöld fyrir þá sem misstu af.
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4338389/11
Ferðalög | Breytt 6.3.2008 kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.8.2007 | 04:01
Heimkoman ! Aðeins 2 dagar eftir !
Ég er ennþá hér í New York borg, borginni sem aldrei sefur. Það er alltaf jafn magnað að ganga um götur Manhattan á kvöldin og upplifa ljósadýrðina og umferðina og allt mannfólkið. Alveg magnað. Ég eyddi megnið af deginum í að ráfa um göturnar og var kíkt í nokkrar búðir. Kreditkortið var notað eitthvað og eitt og annað datt í poka, þannig að á endanum varð ég að kaupa mér ferðatösku fyrir allt saman enda ekki með neitt því allt fór með hjólinu heim! Eitthvað verður maður nú að gera hérna. Enn einu sinni í þessari ferð hitti ég frægan leikara og spjallaði við hann í smástund. Því miður get ég ekki sagt ykkur hver hann er alveg strax. En ég get gefið ykkur smá vísbendingu, þessi leikari er kona og hefur leikið aðalhlutverkið í mjög vinsælum sjónvarpsþáttum sem sýndir voru á Íslandi. Þarna voru lífverðir, paparazzi ljósmyndarar og allur pakkinn ! Svaka mikið fjör. En ég upplýsi hver þetta er seinna. Þó að það sé gaman að koma til New York og upplifa allt þetta líf sem hér er, þá vildi ég miklu heldur vera bara kominn heim núna. Dagurinn í dag er númer 93 í ferðalaginu og verð ég bara að segja það eins og er að það er erfitt að bíða hér og komast ekki heim fyrr en á fimmtudaginn.
En þá komum við að heimkomunni. Við Einar lendum á Íslandi á föstudagsmorgun og kl. 09:00 leggjum við af stað frá Keflavík til Reykjavíkur og allir velkomnir sem vilja fylgja okkur síðustu kílómetrana. Við ættum því að vera við verslun MótorMax um kl. 10:00 og ljúka þar með ferðinni okkar í kringum hnöttinn. MótorMax ætlar að bjóða upp á kökur og kaffi og vona ég að sem flestir geti komið og upplifað með okkur þessa stóru stund að klára ferðina. Gaman, gaman.
Im still here in New York, the city that never sleeps. Its always amazing walking the streets of Manhattan at nights and seeing all the lights, the people and the traffic. But I spent most of the day wandering around and I even did a little shopping. One thing led to another and I ended up having to buy a suitcase because everything else was sent home with the bike! But its good to have something to do over here. I met another famous person here in New York and I talked to her. It was a famous actress but I cant reveal who it is right now, Ill do it later. She is very popular and there were paparazzies, bodycards and people everywhere around her. But even though its fun being here and experiencing everything New York has to offer, frankly Id rather be home right now. Its day number 93 and its hard to have to wait to get home.
But now Im going to talk about the actual homecoming. Einar and I will be landing in Keflavík early in the morning and at 9 am we will head off to Reykjavík and everyone are welcome to join us. We should be at MotorMax around 10 am where we will officially end our trip around the world. MotorMax will be offering coffee and cakes for those who want. I just hope to see as many of you as possible. This will be a lot of fun! - Sverrir
Ferðalög | Breytt 9.8.2007 kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)